Sundafrúin rausar um lífið, tilveruna, allt og ekkert!
Jag är inte dum,har bara otur när jag tänker!
Lendir þú í Jólakettinum ?
- Rýmið stórt borð. Sækið pokann með gjöfunum inn í skáp. Lokið skápnum.
- Opnið skápinn og hleypið kettinum út.
- Sækið gjafapappír inn í skáp. Hleypið kettinum aftur út úr skápnum.
- Sækið límband og skæri ofan í skúffu. Komið öllu þæginlega fyrir á borðinu.
- Sækið bönd og borða í skúffu. Hleypið kettinum, sem hefur verið þarna síðan þið sóttuð límbandið, upp úr skúffunni.
- Takið gjöfina upp úr pokanum og athugið í kassann, hvort það sé ekki sú rétta. Takið köttinn upp úr kassanum.
- Byrjið að sníða til pappírinn. Ef hann virðist ósléttur, takið þá köttinn undanum pappírnum.
- Setjið köttinn ofan í pokann utan af gjöfinni til að fá frið til að sníða nýja pappírsörk.
- Klippið niður vænan slatta af límbandi og geymið á borðbrúninni.
- Eyðið næstu 20 mínútum í að fjarlægja límband úr kattarfeldi með flísatöng.
- Vefjið pappírnum snyrtilega utan um gjöfina og festið niður með límbandi. Eltið köttinn um íbúðina til að ná af honum pakkabandinu.
- Hnýtið slaufuna utan um pakkann. Sækið næstu gjöf. Uppgötvið að kötturinn hefur á meðan rústað nýinnpakkaðri gjöfinni með leik sínum.
- Endurtakið skref 7-13 eftir þörfum. Læsið ykkur inn á baðherbergi ef nauðsyn krefur.
- Þegar innökkun er loksins lokið farsællega er mál að verðlauna sig. Farið fram í eldhús og fáið ykkur eitthvað gott. Gefið kettinum líka (þótt hann eigi það nú eiginlega ekki skilið, helvískur), maður á alltaf að vera góður við dýrin.
- Ef kötturinn kemur ekki til að þiggja góðgætið, ættuð þið að leggja eyrað að nýinnpakkaðri gjöfinni. Ef til vill munuð þið þurfa að pakka henni inn einu sinni enn...
0 Comments:
Post a Comment
<< Home